Um okkur
Varhugi er öryggisvitundarþjónusta sem byggir á einföldum hugmyndum: stutt námskeið, íslenskt mál og gögn sem standast endurskoðun.
Hvað er Varhugi
Vefkerfi sem þjálfar starfsfólk í að þekkja og bregðast við algengustu netárásum: veiðipósti, lykilorðsleka og gervigreindarsvikum. Fimm mínútna námskeið á mánuði, staðfest skírteini fyrir hvern starfsmann og skýrslur sem standast endurskoðun. Allt á íslensku.
Af hverju Varhugi er til
Erlendar lausnir eru of langar, of dýrar og illa þýddar. Lítil og meðalstór fyrirtæki þurfa þjálfun sem starfsfólkið klárar, ekki bara skjal sem segir að það hafi byrjað hana. Varhugi var stofnað til að brúa þetta bil og gera öryggisvitund að einföldum mánaðarlegum vana.
Hver stendur að Varhuga
Varhugi er stofnaður og rekinn af Valdimar Má Péturssyni. Valdimar er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og lagði jafnframt stund á tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík. Hann hefur starfað í upplýsingatækni um árabil, bæði í tæknideildum innan fyrirtækja og í rekstrarþjónustu (MSP) sem sér um upplýsingatækni fjölda fyrirtækja. Þar sá hann aftur og aftur að það sem réð úrslitum var ekki búnaðurinn heldur fólkið: hvort starfsmaður þekkti svikapóstinn, staldraði við óvænta beiðni og vissi hvert ætti að tilkynna. Varhugi er sprottinn úr þeirri reynslu og hefur eitt markmið: að starfsfólk sem fer í gegnum þjálfun hjá Varhuga búi yfir raunverulegri öryggisvitund í daglegu starfi. Valdimar er búsettur í Reykjavík og svarar sjálfur fyrirspurnum á info@varhugi.is.
Fyrir hvern
Lítil og meðalstór fyrirtæki, opinberar stofnanir og verktakar sem þurfa að sýna fram á þjálfun starfsfólks vegna NIS2-tilskipunarinnar, persónuverndarlaga eða krafna viðskiptavina.

