Beint í meginmál

Persónuverndarstefna

Síðast uppfært: 4. október 2026.

Varhugi virðir persónuvernd notenda. Þessi stefna útskýrir hvaða persónuupplýsingar við söfnum, hvers vegna og hvernig þú stjórnar þeim. Hún byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR).

Ábyrgðaraðili

Varhugi er ábyrgðaraðili vinnslunnar. Þjónustan er rekin af Valdimari Má Péturssyni, Reykjavík. Kennitala verður birt hér þegar félag um reksturinn hefur verið stofnað. Hægt er að ná í okkur á info@varhugi.is.

Gögn sem við söfnum

Við söfnum aðeins þeim gögnum sem nauðsynleg eru til að veita þjónustuna: nafni, netfangi, deild og hlutverki innan fyrirtækis; framvindu námskeiða, prófniðurstöðum og útgefnum skírteinum; tilkynningum um grunsamleg skilaboð og staðfestingum á stefnum sem starfsfólk sendir inn; kennitölu fyrirtækis þegar við á; greiðsluupplýsingum, sem greiðsluveitandi vinnur en ekki Varhugi; og tæknigögnum um notkun, svo sem tímasetningum innskráninga, IP-tölum og vafrategund, sem við notum til öryggis og rekstrar.

Tilgangur vinnslu

Að veita þjónustuna, gefa út og staðfesta skírteini, búa til endurskoðunarskýrslur fyrir vinnustaðinn þinn, eiga samskipti við notendur, meðal annars með innskráningarpóstum og áminningum, og halda vefsvæðinu öruggu og rekstrarhæfu.

Þriðju aðilar (undirvinnsluaðilar)

Til að veita þjónustuna notum við eftirfarandi undirvinnsluaðila: Vercel (hýsing og geymsla skírteina, Frankfurt), Neon (gagnagrunnur, Frankfurt), Resend (sending tölvupósta), Stripe (greiðslur, þegar áskrift er greidd) og Upstash (skyndiminni fyrir aðgangstakmarkanir og rekstrarmerki, Frankfurt). Hver aðili fær aðeins þau gögn sem nauðsynleg eru fyrir þjónustu sína. Gögn eru að jafnaði hýst innan EES, en sumir aðilar eru bandarísk félög og flutningur út fyrir EES byggist þá á stöðluðum samningsákvæðum ESB (SCC) eða EU-US Data Privacy Framework. Þegar skráð er inn með Microsoft eða Google fer auðkenningin fram hjá viðkomandi fyrirtæki sem sjálfstæðum ábyrgðaraðila; Varhugi fær aðeins nafn og netfang að innskráningu lokinni. Nánar er fjallað um vinnsluna í vinnslusamningi Varhuga á varhugi.is/vinnslusamningur.

Geymslutími

Námskeiðsgögn eru geymd á meðan reikningurinn er virkur. Þegar reikningi er eytt eru persónuupplýsingar fjarlægðar innan 30 daga, nema lög krefjist annars (bókhaldsskyld gögn: 7 ár). Skírteini eru þó varðveitt áfram svo hægt sé að staðfesta þau síðar á opinni staðfestingarsíðu, enda er það kjarni þjónustunnar; um þá varðveislu er Varhugi sjálfstæður ábyrgðaraðili gagnvart skírteinishafanum. Sé óskað sérstaklega eftir eyðingu skírteina, til dæmis með tölvupósti, er þeim einnig eytt.

Réttindi þín

Þú átt rétt á aðgangi að þeim gögnum sem við geymum um þig, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu, flutningi eigin gagna og að andmæla vinnslu. Sendu beiðnir á info@varhugi.is. Notir þú Varhuga sem starfsmaður fyrirtækis er fyrirtækið ábyrgðaraðili þeirra gagna sem það skráir um þig, og við vísum beiðnum þangað eftir atvikum, nema þær varði skírteinin þín. Þú getur einnig sent kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is) ef þú telur okkur ekki hafa farið að lögum.

Vafrakökur

Við notum aðeins nauðsynlegar vafrakökur, þær sem halda innskráningunni þinni og muna tungumálið sem þú valdir. Engar vafrakökur frá þriðja aðila eru notaðar á varhugi.is, hvorki til markaðssetningar né mælinga. Til að telja heimsóknir notum við Vercel Web Analytics, sem notar ekki vafrakökur og auðkennir ekki einstaka notendur.