Beint í meginmál

Öryggi Varhuga

Varhugi þjálfar starfsfólk í öryggisvitund og þá er eðlilegt að spyrja hvernig þjónustan sjálf er varin. Hér er yfirlitið sem öryggisstjóri eða innkaupadeild þarf við mat á birgja: hýsing, aðgangsstýring, tæknilegar varnir og meðferð gagna.

Fyrir öryggisstjóra

Spurningarnar tíu sem birgjamat spyr yfirleitt um, hverri svarað í einni línu með tengli á kaflann eða skjalið sem stendur á bak við svarið.

  1. 1. Hvaða gögn eru geymd

    Nafn, netfang, deild og hlutverk starfsfólks; námsframvinda, niðurstöður prófa og skírteini; tilkynningar um grunsamleg skilaboð og staðfestingar á stefnum sem starfsfólk sendir inn; innskráningarfærslur (tími, IP-tala, vafri). Ekkert annað.

    Flokkar gagna í vinnslusamningi
  2. 2. Hvar gögnin eru hýst

    Hjá Vercel, með gagnagrunn hjá Neon í Frankfurt, innan EES. Gagnagrunn má endurheimta á tiltekið tímamark og útgáfur má taka til baka samstundis.

    Hýsing
  3. 3. Auðkenning

    Engin lykilorð. Innskráningarhlekkur í tölvupósti eða SSO með Microsoft og Google þar sem ykkar fjölþátta auðkenning gildir. Hlutverkin stjórnandi, deildarstjóri og starfsmaður. Lotur eru geymdar á þjóni og stjórnendur skráðir út eftir fjögurra klukkustunda aðgerðaleysi.

    Innskráning og aðgangsstýring
  4. 4. Stofnun og brottfelling notenda

    SSO-notendur bætast sjálfkrafa við og hlutverk fylgja þeim sem skilgreind eru í Entra (app roles). SCIM-tenging við Entra ID stofnar notendur og gerir þá óvirka sjálfkrafa þegar aðgangur á ekki lengur að vera virkur; óvirkir halda sögunni og losa sætið.

    Leiðbeiningar um SCIM
  5. 5. Dulkóðun

    TLS á allri umferð, dulkóðun í hvíld í gagnagrunninum.

    Tæknilegar varnir
  6. 6. Hverjir hjá Varhuga komast í gögnin

    Fáir nafngreindir reikningar með aðgang að rekstrarumhverfinu. Starfsfólk Varhuga skráir sig ekki inn í vinnusvæði viðskiptavina. Aðgerðir stjórnenda viðskiptavinar eru skráðar í atvikaskrá.

    Aðgangur starfsfólks Varhuga
  7. 7. Öryggisprófanir

    Sjálfvirk yfirferð hugbúnaðarsafna við hverja breytingu og vikulega. Heildarrýni á kóða í júlí og september 2026. Engin óháð innbrotsprófun enn.

    Öryggisrýni
  8. 8. Viðbrögð við atvikum

    Tilkynning án ótilhlýðilegrar tafar og að jafnaði innan 48 klukkustunda frá því að Varhugi verður vart við brot sem varðar ykkar gögn, með eftirfylgni eftir því sem rannsókn miðar.

    Öryggisbrot
  9. 9. Persónuvernd

    Vinnslusamningur gildir sjálfkrafa. Fimm nafngreindir undirvinnsluaðilar, 30 daga fyrirvari á breytingum. Gögnum eytt eða þau afhent innan 30 daga frá lokum samnings.

    Vinnslusamningur
  10. 10. Vottanir

    Hvorki ISO 27001 né SOC 2 fyrir Varhuga sjálfan. Vercel og Neon hafa SOC 2 Type 2. Engin trygging um uppitíma (SLA) í núverandi áskriftarleiðum.

    Vottanir

Hýsing og gagnageymsla

Þjónustan keyrir hjá Vercel. Gögn eru geymd í gagnagrunni hjá Neon í Frankfurt í Þýskalandi og útgefin skírteini í skráageymslu Vercel, einnig í Frankfurt, hvort tveggja innan Evrópska efnahagssvæðisins. Tölvupóstur, svo sem innskráningarhlekkir og áminningar, fer um Resend.

Sumir undirvinnsluaðilar eru bandarísk félög. Eigi flutningur persónuupplýsinga út fyrir EES sér stað byggist hann á stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB (Standard Contractual Clauses, SCC) eða þátttöku viðkomandi aðila í EU-US Data Privacy Framework.

Innskráning og aðgangsstýring

  • Engin lykilorð

    Varhugi geymir engin lykilorð. Innskráning fer fram með innskráningarhlekk í tölvupósti eða innskráningarkerfi vinnustaðarins, svo það er ekkert lykilorðasafn sem getur lekið.

  • SSO með Microsoft og Google

    Starfsfólk skráir sig inn með Microsoft Entra ID eða Google-reikningi vinnustaðarins og þá gilda fjölþátta auðkenning (MFA) og aðgangsreglur fyrirtækisins sjálfs við innskráningu. Varhugi er ekki með eigin fjölþátta auðkenningu; með innskráningarhlekk í tölvupósti byggist öryggið á aðgangi að pósthólfinu. Lokaður reikningur kemst ekki lengur inn, en viðkomandi er áfram skráður í Varhuga þar til hann er fjarlægður undir Starfsfólk eða gerður óvirkur með SCIM.

  • Hlutverkaskipt réttindi

    Réttindi fara eftir hlutverki. Almennt starfsfólk sér aðeins eigin þjálfun og stjórnendur sjá stöðu síns fyrirtækis, ekki annarra.

  • Aðskilnaður milli fyrirtækja

    Gögn hvers fyrirtækis eru aðskilin frá öðrum og allar fyrirspurnir eru bundnar við fyrirtæki innskráðs notanda.

Tæknilegar varnir

  • Dulkóðun á ferð og í hvíld: öll umferð fer um TLS og gögn í gagnagrunninum eru dulkóðuð í hvíld.
  • Lágmarksréttindi í gagnagrunninum: forritið tengist með hlutverki sem má aðeins lesa og skrifa gögn. Það getur hvorki breytt töflum né eytt þeim, og skemabreytingar fara eingöngu í gegnum sérstakt eigandahlutverk sem forritið notar ekki.
  • Öryggishausar á öllum síðum: þvinguð Content-Security-Policy með nonce sem leyfir aðeins skriftur vefsins sjálfs, HSTS með preload, X-Frame-Options: DENY, nosniff, Referrer-Policy og Permissions-Policy.
  • Aðgangstakmarkanir (rate limiting) á innskráningu og öðrum viðkvæmum endapunktum verja gegn ágiskunartilraunum og ruslumferð.
  • Öryggisuppfærslur á hugbúnaðarsöfnum eru hluti af föstu viðhaldi þjónustunnar.

Uppbygging og rekstur

Hér eru svörin sem birgjamat þarf. Ítarleg tæknilýsing, öryggisskjalið, er aðgengileg innskráðum stjórnendum, líka í ókeypis vinnusvæði.

Einingar
Forritið keyrir hjá Vercel í Frankfurt og öll varanleg gögn, gagnagrunnur og útgefin skírteini, eru hýst þar líka, innan EES. Skyndiminni fyrir aðgangstakmarkanir geymir aðeins tætt auðkenni (hash), aldrei netföng eða IP-tölur í hreinum texta. Varhugi rekur enga eigin netþjóna.
Aðskilnaður viðskiptavina
Aðskilnaði fyrirtækja er framfylgt í hverri einustu fyrirspurn: notandi kemst aðeins í gögn síns vinnusvæðis og deildarstjóri aðeins í sína deild. Vald yfir öllu fyrirtækinu er bundið við stjórnendur.
Innskráning og lotur
Notendur skrá sig inn með einnota hlekk sem sendur er í tölvupósti og gildir í 15 mínútur, eða með Microsoft- eða Google-innskráningu (SSO). Varhugi geymir engin lykilorð. Réttindi sem byggja á netfangi, boð og skráningartenglar, eru aðeins veitt netföngum sem hafa verið sannreynd. Lotur eru geymdar á þjóninum, gilda að hámarki 30 daga og þeim lýkur um leið og notandi skráir sig út. Lotum stjórnenda og deildarstjóra er auk þess lokað eftir fjögurra klukkustunda aðgerðaleysi.
Atvikaskrá
Öryggistengdar aðgerðir stjórnenda eru skráðar í atvikaskrá sem aðeins er bætt við, aldrei breytt: innskráningar, breytingar á hlutverkum, brottfelling notenda, boð, úthlutanir, SCIM-atburðir, staðfestingar stefna og tilkynningar, hver með geranda, viðfangi, tíma og IP-tölu. Stjórnendur skoða hana undir Stillingar og sækja sem CSV.
Aðgangur starfsfólks Varhuga og leyndarmál
Starfsfólk Varhuga skráir sig ekki inn í vinnusvæði viðskiptavina; aðgangur að rekstrarumhverfinu er bundinn við fáa nafngreinda reikninga. Öll leyndarmál eru geymd í stillingum hýsingarinnar, aldrei í frumkóða, og þeim má skipta út án kóðabreytingar.
Veikleikastjórnun
Hugbúnaðarsöfn eru yfirfarin sjálfvirkt við hverja kóðabreytingu og aftur í hverri viku. Alvarlegur veikleiki stöðvar útgáfu þar til hann hefur verið lagaður. Allur kóði þjónustunnar var öryggisrýndur í júlí 2026 og aftur í september 2026 með áherslu á aðskilnað fyrirtækja, eins og lýst er hér að neðan.
Afrit og endurheimt
Gagnagrunnsþjónustan heldur samfelldri sögu allra breytinga svo hægt er að endurheimta gagnagrunninn á tiltekið tímamark, ekki bara síðasta næturafrit. Forritið er sett upp beint úr útgáfustýringu og hver útgáfa er geymd, þannig að gallaða útgáfu má taka til baka á nokkrum mínútum.
Vottanir
Varhugi hefur hvorki ISO 27001 né SOC 2 vottun og heldur öðru ekki fram. Þau fyrirtæki sem reka innviðina, Vercel og Neon, hafa SOC 2 Type 2 vottun og birta skýrslur sínar á eigin öryggissíðum. Engin formleg trygging um uppitíma (SLA) fylgir núverandi áskriftarleiðum.

Öryggisrýni

Ítarleg öryggisrýni á öllum kóða þjónustunnar fór fram í júlí 2026 og aftur í september 2026, þá með áherslu á aðskilnað fyrirtækja, réttindastig og auðkenningu, og úrbætur voru innleiddar í kjölfarið. Rýnin er endurtekin reglulega. Sjálfvirk heimildapróf keyra við hverja breytingu á kóðanum og staðfesta að gögn eins fyrirtækis sjáist aldrei öðru, að deildarstjórar sjái aðeins sína deild og að óvirkir notendur komist ekki inn. Óháð innbrotsprófun (penetration test) hefur ekki enn farið fram; þegar hún verður gerð birtist samantekt hér.

Finnir þú veikleika í þjónustunni þiggjum við ábendingu á info@varhugi.is eða á netfangið í öryggisyfirlýsingu vefsins, varhugi.is/.well-known/security.txt, og bregðumst hratt við.

Undirvinnsluaðilar

Varhugi notar fáa og vel þekkta undirvinnsluaðila. Hver þeirra fær aðeins þau gögn sem þjónusta hans krefst og er bundinn af vinnslusamningi við Varhuga. Breytingar á listanum eru tilkynntar viðskiptavinum með 30 daga fyrirvara.

  • VercelHýsing og keyrsla hugbúnaðarins og geymsla útgefinna skírteina, Frankfurt
  • NeonGagnagrunnur, hýstur í Frankfurt
  • ResendSending tölvupósta
  • StripeGreiðsluvinnsla þegar áskrift er greidd
  • UpstashSkyndiminni fyrir aðgangstakmarkanir og rekstrarmerki, hýst í Frankfurt

Varðveisla og eyðing gagna

Við lok þjónustu hefur fyrirtækið 30 daga til að sækja gögn sín á algengu tölvutæku formi; að þeim tíma liðnum, eða fyrr sé þess óskað, er persónuupplýsingum eytt. Útgefin skírteini fylgja starfsmanninum sjálfum og eru varðveitt áfram svo hægt sé að sannreyna þau á opinni staðfestingarsíðu; um þá varðveislu er Varhugi sjálfstæður ábyrgðaraðili og skírteinishafi getur óskað eyðingar hvenær sem er.

Öryggisbrot

Verði vart við öryggisbrot sem varðar gögn viðskiptavinar er honum tilkynnt það án ótilhlýðilegrar tafar og að jafnaði innan 48 klukkustunda frá því að Varhugi verður brotsins vart, með lýsingu á eðli brotsins, líklegum áhrifum og þeim ráðstöfunum sem gripið hefur verið til, og síðan sendar viðbótarupplýsingar eftir því sem rannsókn miðar. Þannig hefur fyrirtækið svigrúm til að uppfylla eigin tilkynningarskyldu til Persónuverndar innan 72 klukkustunda þegar við á.

Tengd skjöl

Vinnslusamningurinn gildir sjálfkrafa fyrir öll fyrirtæki sem nota þjónustuna. Fyrirtæki með Pro-áskrift eða sérsamning geta óskað eftir undirrituðu eintaki.

Spurningum um öryggi svörum við á info@varhugi.is.