Minnisblað til stjórnar
Öryggisþjálfun starfsfólks og NIS2
- Fyrirtæki
- [Nafn fyrirtækis]
- Dagsetning
- [dagsetning]
- Frá
- [nafn og hlutverk, t.d. öryggisstjóri]
- Til
- Stjórnar og framkvæmdastjóra
1. Hvað NIS2 krefst af stjórn
NIS2 hefur tekið gildi í ESB og er á leið í íslensk lög með breytingum á netöryggislögunum. Kröfurnar hér að neðan eru úr tilskipuninni sjálfri (ESB 2022/2555):
- Stjórnin samþykkir öryggisráðstafanir fyrirtækisins, hefur eftirlit með framkvæmd þeirra og situr sjálf þjálfun (20. gr. tilskipunarinnar).
- Þjálfun starfsfólks í netöryggi er skyldubundinn hluti áhættustjórnunar (21. gr.). Hún á að vera reglubundin og skjalfest, ekki einskipti, og sannanleg gagnvart endurskoðendum og eftirliti.
- Alvarleg atvik skal tilkynna eftirlitsstjórnvaldi með fyrstu viðvörun innan 24 klukkustunda og ítarlegri tilkynningu innan 72 klukkustunda (23. gr.). Starfsfólk þarf að vita hvernig það tilkynnir atvik innanhúss svo það sé hægt.
- Stjórnendur geta borið persónulega ábyrgð á vanrækslu. Kröfurnar ná líka óbeint til birgja fyrirtækja sem falla undir tilskipunina, sem senda öryggisspurningalista og krefjast staðfestrar þjálfunar.
2. Hvað er lagt til
Að allt starfsfólk, stjórn meðtalin, taki reglubundna öryggisvitundarþjálfun með Varhuga: eitt stutt námskeið á mánuði á íslensku, um fimm mínútur á mann, með stuttu prófi í lokin. Uppsetningin er sjálfsafgreiðsla og tekur nokkrar mínútur. Engin sérstök innleiðing er nauðsynleg. Þjálfunin skilar þeirri skjalfestingu sem eftirlit og endurskoðendur spyrja um:
- Skírteini fyrir hvert lokið námskeið, sannreynanlegt á opinni vefsíðu.
- Mánaðarleg endurskoðunarskýrsla á PDF-sniði með stöðu hvers starfsmanns, tilbúin fyrir endurskoðanda eða eftirlit.
- Vörpun þjálfunarinnar á kröfur NIS2, grein fyrir grein (varhugi.is/nis2).
- Stjórnborð sem sýnir hverjir eru á eftir og sendir sjálfvirkar áminningar, svo eftirfylgni kostar ekki vinnutíma.
3. Kostnaður
| Áskrift | Fyrir | Verð án vsk. |
|---|---|---|
| Lite | Allt að 25 sæti | 9.900 kr á mánuði eða 99.000 kr á ári |
| Business | 26 til 50 sæti | 17.900 kr á mánuði eða 179.000 kr á ári |
| Pro | 51 sæti eða fleiri, upprifjanir og forgangsstuðningur | 490 kr á sæti á mánuði eða 4.900 kr á sæti á ári |
Verð samkvæmt verðskrá á varhugi.is/verd. 24% vsk. bætist við. Ársgreiðsla samsvarar tíu mánaðargreiðslum.
Fjöldi starfsfólks: [fjöldi]. Áætlaður árskostnaður án vsk.: [upphæð].
4. Ákvörðun sem óskað er eftir
Að stjórn samþykki að taka upp reglubundna öryggisvitundarþjálfun fyrir allt starfsfólk með Varhuga frá [dagsetning], feli [nafn og hlutverk] framkvæmdina og fái stöðuskýrslu [ársfjórðungslega].
- Samþykkt
- [já / nei / frestað]
- Dagsetning
- [dagsetning]
- Bókað af
- [nafn]
Sniðmát frá Varhuga, varhugi.is/leidbeiningar/stjornarminnisblad. Aðlagið að ykkar aðstæðum. Almenn leiðbeining, ekki lögfræðiráðgjöf.

